Ný útgáfa af Kristjánsbúrinu var sýnd á sjávarútvegssýningunni í gær. Búrið er öryggistæki og eykur um leið afköst í löndun. Þetta er þriðja útgáfan af búrinu sem er léttari en sú fyrsta. Búrið var hannað af starfsmönnum Samherja til að koma í veg fyrir slys í löndun.

VB Sjónvarp ræddi við Hólmar Svansson, sölustjóra Promens.