Fyrirtæki Einars Björns Einarssonar, Jökulsárlón ferðaþjónusta ehf., hefur boðið upp á bátsferðir um Jökulsárlón undir vörumerkinu Glacier Lagoon.

Fyrirtækið Ice Lagoon hefur einnig boðið upp á bátsferðir á lóninu, en Einar hefur sagst vera ósáttur við það að öðrum aðila en hans eigin fyrirtæki sé leyft að bjóða upp á þessa þjónustu á því svæði sem hann leigir.

Spurður hvort hann muni leyfa öðrum að reka ferðaþjónustu á svæðinu ef hann eignast jörðina Fell segist Einar ekki vera neikvæður gagnvart því. Hann sé fyrst og fremst ósáttur við það hvernig staðið hefur verið að málunum hingað til.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .