Ósk Heiða Sveinsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Íslandshótela. Undir þeim eru Fosshótel-keðjan og Reykjavíkurhótel. Um nýtt starf er að ræða.

Fram kemur í tilkynningu að Ósk Heiða mun m.a. sjá um mótun stefnu Íslandshótela í  markaðsmálum og markaðssetningu á vörum og þjónustu þess. Ósk Heiða starfaði áður í markaðsdeild Advania, en gegndi áður stöðu markaðsstjóra hjá HugAx frá árinu 2007 til 2012.

Ósk Heiða er með mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands, en hluta námsins tók hún við Copenhagen Business School. Eiginmaður Óskar Heiðu er Magnús Freyr Smárason, mastersnemi í rafmagnsverkfræði við HR. Þau eiga tvo börn.