Auglýst hefur verið eftir tilboðum í hafnargæslu á Grundartanga, en fyrir dyrum stendur að skerpa á nokkrum þáttum í rekstri Grundartangahafnar segir í tilkynningu á heimasíðu Faxaflóahafna.
Þar kemur fram að umsvif á Grundartanga hafa farið ört vaxandi og því mikilvægt að laga starfsemina að breyttum aðstæðum. Markmið breytinganna er m.a. að bæta þjónustuna Faxaflóahafna sf. samhliða hagræðingu í rekstri.