Magnús Árni Skúlason hagfræðingur segir í yfirlýsingu að hann hafi ákveðið að fara þess á leit við Alþingi að sér verði veitt lausn frá störfum sínum sem bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslands.

Magnús Árni var af Alþingi kjörinn í bankaráð hinn 11. ágúst. Var hann tilnefndur af Framsóknarflokknum.

Yfirlýsingin er send í kjölfar umfjöllunar Morgunblaðsins um að Magnús Árni hefði haft samband við Össur og Actavis fyrir rúmum tveimur vikum til að bjóða þeim þjónustu breska miðlarafyrirtækisins Schneider um viðskipti með gjaldeyri erlendis og fá afhentar krónur hér á landi á móti.

Stjórnendur fyrirtækisins væru vinir Magnúsar Árna.

Ekkert ólöglegt hafi átt sér stað

Össur og Actavis eru í hópi þeirra fyrirtækja sem eru með undanþágu frá gjaldeyrishöftunum vegna þess að meiri hluti tekna þeirra er í erlendum gjaldeyri. Fram kom í fréttum í sumar að Össur og tvö álfyrirtæki, sem einnig eru með undanþágur, nýttu sér hluta tekna sinna til að kaupa krónur erlendis á hagstæðara gengi og greiða kostnað hér heima.

Seðlabankinn fór fram á það við fyrirtækin fyrr í sumar að þau létu af slíkum viðskiptum - þrátt fyrir að þau væru ekki ólögleg. Slík viðskipti ynnu gegn markmiðum gjaldeyrishaftanna.

Magnús Árni segir í yfirlýsingu sinni í dag að Schneider hafi haft samband við sig að fyrra bragði og að ekkert ólöglegt hafi átt sér stað. Í ljósi þess hins vegar að störf sín hefðu nú opinberlega verið tortryggð með ómaklegum hætti hefði hann ákveðið að óska eftir því að biðjast lausnar.