Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrverandi fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis, hefur verið ráðinn forstöðumaður íþróttasviðs 365 miðla. Það er ný staða innan fyrirtækisins en til stendur að sameina alla íþróttaumfjöllun 365 undir einu sviði.

Samkvæmt heimildum VB.is byrjar Óskar Hrafn á 365 miðlum í júní en hann mun hafa skrifað undir ráðningarsamning í gær.