Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Miðopnu, útgáfufélagi Fréttatímans. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Gunnars Smára Egilssonar, útgefanda og annars ritstjóra Fréttatímans. Óskar mun stýra uppbyggingu félagsins á vefnum.

Óskar var meðal þeirra sem komu að stofnun Fréttatímans, hann átti hlut í blaðinu og var fréttastjóri fram á árinu 2012.

Í lok nóvember var tilkynnt um að fjárfestahópur undir forystu Gunnars hefði keypt allt hlutafé í Miðopnu, eiganda fréttatímans. Um miðjan desember var síðan tilkynnt um að Þóra Kristín Ásgeirsdóttir hefði verið ráðin fréttastjóri hjá Fréttatímanum.