Óskar Bergsson, rekstrarfræðingur og húsasmíðameistari, leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Óskar er ekki ókunnur borgarmálunum en hann tók við sem borgarfulltrúi eftir að Björn Ingi Hrafnsson hætti árið 2007. Óskar sóttist eftir oddvitasætinu á lista flokksins árið 2010 en náði því ekki.
Tilkynnt var um lista flokksins í dag en á vef Framsóknarflokksins segir að kjördæmaþing framsóknarfélaganna í Reykjavík hafi samþykkt tillögu kjörstjórnar um skipan í efstu sjö sæti framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.
Þá segir á vef flokksins að skipulagsmál verði ofarlega á baugi svo þróun borgarinnar verði til hagsbóta fyrir Reykvíkinga, ekki bara suma. Liður sé staðsetning flugvallarins í Reykjavík og verði að tryggja núverandi staðsetningu hans ef borgin á að þjóna hlutverki sínu sem höfuðborg allra landsmanna.
Skipulagsmál eru umhverfismál og þau verður að nálgast með umræðu við þá sem í borginni búa. Skipuleggja þarf borgina þannig að búseta nærri vinnustað sé raunhæfur möguleiki. Sem dæmi má nefna að tæp 80% af öllum störfum í Reykjavík eru í vestur hluta hennar, þessu þarf að breyta.
Sjö efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í borginni eru eftirfarandi:
- Óskar Bergsson, rekstrarfræðingur og húsasmíðameistari
- Guðrún Bryndís Karlsdóttir, sjúkraliði og verkfræðingur
- Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur
- Guðlaugur Gylfi Sverrisson, vélfræðingur
- Hafsteinn Ágústsson, kerfisstjóri
- Hallveig Björk Höskuldsdóttir, öryggisstjóri
- Trausti Harðarson, viðskiptafræðingur