Óskar Finnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandshótela. Óskar hefur starfað við veitingarekstur og ráðgjöf frá árinu 1990. Óskar var annar af eigendum Argentínu steikhús frá 1990 til 2003.

Síðastliðin 13 ár hefur starfsvettvangur hans aðallega verið í Bretlandi og á Spáni þar sem hann hefur verið búsettur. Óskar hefur einnig stýrt fjölda matreiðsluþátta í sjónvarpi og nú síðast þættinum Korter í kvöldmat á mbl.is.

Íslandshótel reka 18 hótel sem eru meðal annars Grand Hótel Reykjavík, Best Western Hótel Reykavík, Hótel Reykjavík Centrum og Fosshótelin sem eru staðsett víðsvegar um landið.

Fyrirtækið er í örum vexti en innan hótel keðjunnar munu starfa um 1000 manns í sumar og á síðasta ári seldust um 500.000 gistirými.