Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segist ekki munu hætta í stjórnmálum nema Samfylkingin hendi sér öfugum út úr prófkjöri.

„[Þ]au um það ef þau vilja fleygja út sínum fyrsta formanni og þeim eina sem hefur nokkru sinni náð þeim upp fyrir 30 prósent í kosningum. Tvisvar fremur en einu sinni,“ segir Össur í athugasemd við innlegg á Facebook-síðu sinni. Össur var formaður Samfylkingarinnar frá stofnun flokksins í maí 2000 til ársins 2005.

Össur segir að flokkurinn verði að bera hann atkvæðum til að koma sér út með lýðræðislegum hætti. Það muni ekki gerast, því hann muni halda uppteknum hætti og sigra hvern sem er í slíku kjöri. „Ég hef nefnilega stuðninginn sem um munar – grasrótina,“ segir Össur í athugasemdinni.

Í umræddri athugasemd segir Össur það jafnframt vera haugalygi að hann sé refur í stjórnmálum - í mesta lagi yrðlingur.