Össur undirritaði í dag samning við þrjá alþjóðlega banka, ING bank, Nordea og SEB um langtímafjármögnun að fjárhæð 231 milljón Bandaríkjadala. Það jafngildir tæplega 27 milljörðum króna á núverandi gengi.

Í tilkynningu til Kauphallar segir að lánasamningurinn marki tímamót í fjármögnun félagsins. Össur hefur nú tryggt sér alþjóðlegan aðgagng að fjármagni, bæði eigin fé og lánsfé.

Helstu atriði:

* Heildarlánsfjárhæð er 231 milljón Bandaríkjadala:

* 120 milljóna dala lán með jöfnum afborgunum

* 111 milljóna dala lánalína fyrir rekstur og möguleg fyrirtækjakaup

* Meðalvextir eru 145 punktar ofan á LIBOR/EURIBOR

* Vaxtakjör munu breytast í takt við skuldsetningu félagsins

* Lánasamningurinn er til fimm ára, með lokagjalddaga árið 2016

* Allir bankarnir höfðu jafna aðkomu að lánasamningnum (e. Bookrunning Mandated Lead Arrangers)

„Kjör eru góð og endurspegla sterka fjárhagslega stöðu Össurar og bjartar framtíðarhorfur. Núverandi lán verða greidd upp og fjármagnskostnaður mun lækka. FTI Consulting og Slaughter and May veittu Össuri ráðgjöf við endurfjármögnunina,“ segir í tilkynningu.