Hagnaður Össurar á síðasta ári nam um 35 milljónum Bandaríkjadala, eða 4,1 milljarði króna. Það er 10% af sölu samanborið við 23 milljóna hagnað í fyrra og 7% af sölu.

Góður vöxtur í sölu er megin ástæða aukins hagnaðar, segir í tilkynningu um uppgjör félagsins. Söluvöxtur var 9% mældur í staðbundinni mynt. „Góður vöxtur í bæði spelkum og stuðningsvörum og stoðtækjum hefur jákvæð áhrif á söluna. Salan nam alls 359 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári samanborið við 331 milljón dala árið 2009. Sala á spelkum og stuðningsvörum var góð og jókst jafnt og þétt yfir árið og var söluvöxturinn 12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum var einnig góð og jókst um 8%, mælt í staðbundinni mynt.“

EBITDA framlegð nam 74 milljónum dala eða 21% af sölu. Framlegð var 223 milljónir dala eða 62% af sölu,

Jón Sigurðsson, forstjóri félagsins, segir í tilkynningu að heilt yfir séu niðurstöður ársins mjög ánægjulegar. „Margar nýjar vörur voru settar á markað sem voru mikilvægar fyrir árangur okkar á liðnu ári. Við kynntum spennandi nýjungar í hefðbundnum vöruflokkum, bionic vörur eins og PROPRIO FOOT sem og nýjar spelkur og stuðningsvörur. Góður árangur í stoðtækjum, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum styður góðan söluvöxt í stoðtækjunum á árinu. Árangur í sölu á spelkum og stuðningsvörum í Bandaríkjunum er sérstaklega ánægjulegur og staðfestir styrkleika okkar á þessum markaði."

Úr tilkynningu:

Helstu áfangar á árinu:

  • Nýjar vörur - Margar nýjar vörur voru kynntar á markaðnum á árinu 2010. Alls voru 22 nýjar vörur kynntar og þar með talinn PROPRIO FOOT sem er önnur varan í Bionic vörulínu félagsins. Nýjum spelkum og stuðningsvörum, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel tekið, en þessar nýju vörur hafa jákvæð áhrif á söluvöxt.
  • Fjárfesting í sölu- og dreifikerfi - Miklar breytingar á sölu- og dreifikerfi voru gerðar árið 2009 í Bandaríkjunum, en þessar breytingar hafa skilað góðum árangri á árinu 2010. Fjárfestingar í dreifiaðilum og víðtækara sölukerfi hafa skilað góðum vexti í sölu og samhliða hafa margar nýjar spelkur og stuðningsvörur verið kynntar. Þessir þættir hafa átt stóran þátt í þeim árangri sem náðst hefur og vöxtur í sölu hefur verið umfram áætlaðan markaðsvöxt í Bandaríkjunum.

Áætlun 2011 - Fyrir árið 2011 gera stjórnendur ráð fyrir innri söluvexti á bilinu 4-6%, mælt í staðbundinni mynt og að EBITDA leiðrétt fyrir einskiptis tekjum og kostnaði verði á bilinu 20-21% fyrir árið í heild.