Össur hf. hagnaðist um 13 milljónir dollara á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í nýbirtu árshlutauppgjöri félagsins. Um er að ræða hagnað sem nemur 1,4 milljörðum íslenskra króna, sem er um 9% af sölu. Dróst hagnaður saman um tvær milljónir dollara samanborið við sama tímabil í fyrra.

Sala nam 145 milljónum dollara sem samsvarar 15,2 milljörðum íslenskra króna, samanborið við 139 milljón Bandaríkjadala á öðrum ársfjórðungi 2016 og nam söluvöxtur frá fyrra ári 6%, þar af 3% innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.

EBITDA aðlöguð fyrir einskiptisliðum nam 27 milljónum dollara sem samsvarar  2,8 milljörðum íslenskra króna eða 19% af sölu.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 23 milljónum dollara samanborið við 16 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Rekstraráætlun fyrirtækisins fyrir árið 2017 hefur verið endurskoðuð vegna óhagstæðra gengishreyfinga á fyrri helmingi ársins. EBITDA framlegð aðlöguð fyrir einskiptisliðum er nú áætluð á bilinu 18-19% samanborið við fyrri áætlun á bilinu 19-20%. Allir aðrir liðir rekstraráætlunarinnar er innihalda söluvöxt, fjárfestingar og virkt skatthlutfall eru óbreyttir.

Í tilkynningu frá Össuri segir Jón Sigurðsson, forstjóri félagsins:

„Söluvöxtur á öðrum ársfjórðungi ársins er í takt við væntingar okkar. Við erum að sjá góðan innri söluvöxt fyrir fyrri helming ársins 2017 en vegna færri söludaga í fjórðungnum verðum við fyrir neikvæðum áhrifum á söluvöxt okkar. Við höldum áfram að sjá góða frammistöðu í stoðtækjarekstri okkar með RHEO® hnéð okkar og aðrar lykilvörur þar í fararbroddi. Vel gengur að samþætta nýleg fyrirtækjakaup og hafa áætlanir um samlegðaráhrif gengið eftir.”