Stoðtækjafyrirtækið Össur, sem nú er skráð á danskan markað, skilaði hagnaði upp á 18 milljónir Bandaríkjadala, eða sem samsvarar 2,2 milljörðum íslenskra króna á fjórða ársfjórðungi. Er það nærri helmingssamdráttur frá sama tíma fyrir ári þegar hagnaður félagsins nam 34 milljónum dala.

Hagnaður ársins nam 69 milljónum dala, eða sem samsvarar 8,5 milljörðum íslenskra króna, en hagnaður ársins 2018 nam 80 milljónum dala, svo samdrátturinn milli ára var nærri 14%. Stjórn félagsins hyggst leggja til að 14% af hagnaði ársins, eða sem samsvarar um 1,2 milljörðum króna verði greiddur út sem arður.

Sala félagsins jókst á fjórða ársfjórðungi um 7,1%, og fór úr 168 milljónum dala í 180 milljónir dala. Á sama tíma fór kostnaðarvirði seldra hluta úr 61,1 milljón dala í 66,6 milljónir dala, sem er vöxtur um  9%. Rekstrarkostnaður jókst um 8,6%, fór úr 81 milljón dala í 88 milljónir dala.

EBITDA félagsins jókst um 15,6%, úr 32 í 37 milljónir dala, en EBIT jókst um 13,6%, úr 22 í 25 milljónir dala. Heildarframlegðin lækkaði úr 64% í 63%.

Eiginfjárhlutfallið lækkaði

Eigið fé Össurar jókst um 5,8% á árinu 2019, úr 537,5 milljónir dala, í 569 milljónir dala, meðan skuldirnar jukust um 38,7%, úr 376 milljónum dala í 521,7 milljónir dala. Þar með jukust heildareignirnar um 19,4%, úr 913,6 milljónum í 1.090,7 milljónir dala og eigið fé minnkaði þar með úr 58,8% í 52,2%.

Sala ársins 2019 nam 686 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 84 milljörðum íslenskra króna í heildina. Vöxtur í staðbundinni mynt nam 16% á árinu og innri vöxtur var 5%. Sala í fjórða ársfjórðungi nam 180 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 22 milljörðum íslenskra króna, eins og áður segir. Vöxtur í staðbundinni mynt nam 10% í fjórðungnum og innri vöxtur var 1%.

Innri vöxtur í stoðtækjum var 7% á árinu og 3% í spelkum og stuðningsvörum. Söluvöxtur var einna helst drifinn áfram af hátæknivörum félagsins, nýjum vörum og góðum vexti í nýmarkaðsríkjum. Innri vöxtur var 1% fyrir bæði stoðtæki og spelkur og stuðningsvörur í fjórðungnum.

EBITDA fyrir einskiptisliði ársins 2019 nam 150 milljónum Bandaríkjadala (18 milljörðum íslenskra króna) eða 22% af sölu. EBITDA framlegð jókst vegna aukinnar sölu á hátæknivörum og verkefna um aukna hagkvæmni í rekstri en á móti komu fjárfestingar í sölu- og markaðsstarfsemi og áhrif af nýlegum fyrirtækjakaupum.

Össur keypti þrjú fyrirtæki á síðasta ári. Sameiginleg ársvelta fyrirtækjanna nemur um 20 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 2,5 milljörðum íslenskra króna.

Össur keypti 4,784,631 eigin bréf í gegnum endurkaupaáætlun félagsins fyrir 30 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur 3,7 milljarða íslenskra króna, en stjórnin hyggst leggja til að hlutafé félagsins verði lækkað um 2.377.804 kr. og eftir lækkun verður nafnverð hlutafjár félagsins þá 423.000.000 kr.

Fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir 3-5% innri vexti, 21-23% EBITDA framlegð að teknu tilliti til einskiptisliða, 4-5% fjárfestingarhlutfalli og virku skattahlutfalli á bilinu 23-24%.

Jón Sigurðsson , forstjóri, segir niðurstöður ársins upp á 16% vöxt í staðbundinni mynt og 5% innri vöxt vera góðar.

„Hátæknivörur seldust vel, þar á meðal nýi gervigreindarökklinn PROPRIO og nýja slitgigtarspelkan Unloader One X,“ segir Jón.
„Einnig náðist góður árangur í ytri vaxtarstefnu félagsins þar sem þrjú fyrirtæki voru keypt á síðasta ári og skrifað var undir samning um að kaupa stoðtækjaframleiðandann College Park Industries.“