Áætluð sala Össurar á þriðja ársfjórðungi er 87 milljónir Bandaríkjadala og eykst um 6% frá sama tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Össuri en á stjórnarfundi sem fór fram 10. október, var ákveðið að birta áætlaðar rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung.

„Þetta er gert vegna mjög óvenjulegra aðstæðna á fjármálamörkuðum og til þess að innherjar geti átt viðskipti,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Þá kemur fram að áætlaður rekstrarhagnaður er 15 milljónir Bandaríkjadala og eykst um 79%. Áætlaður hagnaður tímabilsins er 12 milljónir Bandaríkjadala og eykst um 480% frá sama tímabili í fyrra. EBITDA er áætluð 20 milljónir og eykst um 43%   Í tilkynningunni kemur fram að unnið er að gerð uppgjörs félagsins fyrir þriðja ársfjórðung. Áætlaðar niðurstöður miðast við rauntölur fyrir júlí og ágúst og áætlun fyrir september.

Undir liðnum aðrar rekstrartekjur eru 2 milljónir Bandaríkjadala, sem er árangurstengd greiðsla vegna sölunnar á sáraumbúðavörulínur félagsins fyrr á árinu.

Hér má sjá ítarlega áætlaðar rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðung. (pdf skjal)