Össur hf. hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að Saga Capital annist viðskiptavakt með hlutabréf Össurar fyrir eigin reikning Saga Capital.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Í samningi um viðskiptavakt felst að Saga Capital setur daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Össurar í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Tilboðin eru sett fram í viðskiptakerfi Nasdaq OMX, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins.
Skilmálar viðskiptavaktasamningsins eru eftirfarandi:
- Saga Capital skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Össurar að lágmarki kr. 200.000 að nafnverði á verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti.
- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,25%
- Frávik frá síðasta viðskiptaverði skal ekki vera meira en 2,0%.
- Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 150 milljónir að markaðsvirði.
Saga Capital mun hefja viðskiptavaktina frá og með deginum í dag,