Össur hf. hefur keypt 2.465.000 af eigin bréfum. Bréfin voru keypt á genginu 22,2 danskar krónur á hlut, eða um 419 íslenskar krónur á hlut. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar.

Heildarkaupverð hlutanna var tæpar 55 milljónir danskra króna, eða rétt rúmlega milljarður íslenskra króna. Hlutirnir er um 0,6% af útgefnu hlutafé Össurar hf. en kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins.