Össur
Össur
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)
Össur hf. keypti í gær eigin bréf, um eina milljón hluta á genginu 8,3 danskar krónur á hlut. Viðskiptin voru gerð í þeim tilgangi að efna kaupréttarsamninga við starfsmenn.

Nýlega var birt ársfjórðungsuppgjör Össurar og voru niðurstöður góðar. Hagnaður félgasins nam 10 milljónum dollara. EBITDA nam 20 milljónum dollara eða 19% af sölu. Framlegð nam 63 milljónum dollara eða 60% af sölu.