Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir að fyrirtækið sé í þeirri óvenjulegu stöðu að eiga of mikið laust fé.

Í samtali við Ritzau fréttastofuna segir Jón að fyrirtæk­ið sé að verða skuldlaust, en erfitt sé að finna fjárfestingartækifæri.

Helst vilji hann styrkja fyrirtækið með kaupum á annarri starfsemi eða með annarri fjárfestingu, hins vegar segist hann ekki sjá marga möguleika í því að kaupa upp keppinauta fyrirtækisins. Ef það takist ekki komi til greina að greiða hluthöfum út arð.