Þáverandi umhverfisráðherra, Össur Skarphéðinsson, var heiðursgestur á herrakvöldi KA í nóvember­ byrjun 1994. Í frásögn Dags er ekki farið nákvæmlega út í innihald ræðu Össurar „enda konur meðal les­enda DAGS,“ eins og það er orðað í blaðinu.

Á borði með Össuri sátu þeir Sigmundur Þórisson, formaður KA, og Björgólfur Jóhannsson, þáverandi gjaldkeri félagsins og núverandi forstjóri Icelandair Group.