OMXI6 hlutabréfavísitalan lækkaði í viðskiptum í dag um 0,27%. Flest félög hækkuðu þó í viðskiptum, þar sem hækkunin var mest hjá VÍS, eða 1,21%. Vægi Össurar og Marels í vísitölunni leiða til lækkunarinnar, en Marel lækkaði um 1,1% og Össur um tæplega 0,6%.

Önnur félög hækkuðu lítillega. Mest velta var með bréf TM, eða um 290 milljóna króna velta. Bréfin hækkuðu í dag um 0,76%. Vodafone hækkaði um 0,55% og Reginn um 0,4% í litlum viðskiptum. Gengi Haga hækkaði um 0,86%, Icelandair Group hækkaði um 0,39% og Eimskip hækkaði um 0,1%.