sarah
sarah

Stoðtækjafyrirtækið Össur og íþróttavöruframleiðandinn Nike hafa gert samning um hönnun og þróun á hlaupasólum fyrir gervifót. Þetta er fyrsti hlaupasólinn af þessari gerð sem Nike framleiðir en sólann má setja undir sérstaka gervifætur frá Össuri sem notaðir eru við hlaup.

Fram kemur í tilkynningu frá Össuri að hlauparinn Sarah Reinertsen sem leikur í auglýsingu Nike, hafi unnið með Össuri að þróun sólans. Auglýsingin var tekin upp hér á landi í sumar. Sarah Reinertsen er með fæðingargalla sem olli því að hægri fótur hennar óx óeðlilega. Taka varð fótinn af ofan við hné þegar hún var sjö ára gömul.  Sarah Reinertsen hóf að æfa hlaup skömmu eftir aðgerðina og sló heimsmet í 100 metra hlaupi kvenna sem hafa misst fótlegg þegar var 13 ára gömul.