Stjórn Össurar ákvað í dag að óska eftir afskráningu félagsins úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

„Hlutabréf Össurar hf. eru nú til viðskipta í kauphöllum NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn og á Íslandi. Stjórn Össurar ákvað í dag að óska eftir afskráningu félagsins úr kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Félagið mun leggja áherslu á skráninguna í Kaupmannahöfn,“ segir í tilkynningunni.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir í tilkynningu að eðlilegt sé að stíga þetta skref í ljósi breytinga sem hafa orðið á viðskiptaumhverfinu og á félaginu sjálfu. „ Össur hefur verið skráð á íslenska hlutabréfamarkaðnum frá 1999 og hefur skráningin gegnt veigamiklu hlutverki í vexti félagsins. Í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í viðskiptaumhverfinu og á félaginu sjálfu á undanförnum árum er eðlilegt að stíga þetta skref og leggja áherslu á hlutabréfamarkað sem getur stutt við fyrirætlanir um framtíðarvöxt félagsins. Ég vil undirstrika að þessi ákvörðun hefur aðeins áhrif á skráningu félagsins á hlutabréfamarkað. Starfsemin á Íslandi hefur verið að aukast og við eigum ekki von á breytingu þar á."

Össur hefur verið skráð í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn síðan í september 2009. Þar hefur félagið aðgang að alþjóðlegum fjárfestum á virtum markaði fyrir fyrirtæki á heilbrigðissviði. Um 64% af hlutabréfum félagsins eru nú til viðskipta á danska markaðnum.

Segir í tilkynningu að hluthafar þurfi ekki að grípa til neinna ráðstafana vegna þessarar óskar um afskráningu. Afskráningarbeiðnin verður send án tafar til NASDAQ OMX á Íslandi.