Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sækist eftir fyrsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi þingkosningum. Stuðningsmenn Össurar tilkynntu um áform hans í dag. Prófkjör fer fram dagana 16. og 17. nóvember næstkomandi.

Össur hefur á ferli sínum sem þingmaður verið umhverfisráðherra, iðnaðarráherra og utanríkisráðherra.