„Það mun reynast flokki eins og Samfylkingunni [...] mjög erfitt að fara í gegnum næstu kosningar nema flokkurinn hafi náð að endurnýja sig, bæði forystuna og ekki síður hugmyndir sínar.“

Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og fyrrv. formaður Samfylkingarinnar, í viðtali við áramótatímarit Viðskiptablaðsins sem kemur út í dag. Í tímaritinu er ítarlegt viðtal við Össur þar sem hann fjallar um stöðu mála í íslenskum stjórnmálum í dag, þau fjölmörgu tækifæri sem Ísland stendur frammi fyrir, sáttarhug sinn vegna sjávarútvegsins og fl. Þá tjáir Össur sig í fyrsta sinn í mörg ár um landsfund Samfylkingarinnar 2005 þegar hann varð undir í formannskosningu.

En Össur svarar einnig spurningum um endurnýjun á forystu Samfylkingarinnar eins og fram kemur hér að ofan. Hann segir að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og núverandi formaður Samfylkingarinnar, hafi þurft að taka á sig margar hrinur áhlaupa og taka erfiðar ákvarðanir. Það hafi staðið á henni öll spjót en hún hafi siglt í gegnum þetta með miklum sóma eins og Össur orðar það. Hins vegar sé þörf á því að endurnýja bæði forystu flokksins sem og hugmyndafræði hans.

„Ég tel að þegar við endurnýjum forystuna eigi að fara niður um tvær kynslóðir og tefla fram ungum en reyndum leiðtoga,“ segir Össur og telur upp nokkurn hóp sem hann segir að í búi góð forystuefni. Þar nefnir Össur sérstaklega Katrínu Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra.

Sem fyrr segir kemur áramótatímarit Viðskiptablaðsins út í dag þar sem finna má ítarlegt viðtal við Össur Skarphéðinsson. Nánar verður fjallað um innihald tímaritsins síðar í dag en Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins og Frumkvöðlaverðlaun Viðskiptablaðsins verða jafnframt afhent í dag.

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson
© BIG (VB MYND/BIG)