Össur hf. hefur gengið frá kaupsamningi við fyrirtækið DRT Mfg.Co. Corporation um yfirtöku á eignum dótturfélagsins Mauch, Inc. í Dayton, Ohio, í Bandaríkjunum. Um er að ræða framleiðslutæki og viðskiptasambönd vegna framleiðslu á íhlutum til hryggígræðslu. Samhliða vexti samstæðu Össurar hefur á síðastliðnum árum verið unnið að því að hnitmiða starfsemi félagsins en þar er framleiðsla stoð- og stuðningstækja kjarnastarfsemi. Þannig hefur stoðtækjaframleiðsla Mauch verið skilin frá annarri framleiðslu dótturfélagsins og komið fyrir í öðrum framleiðslueiningum Össurar.

?Það er ánægjulegt að geta tilkynnt að Össur hefur ákveðið að draga sig út úr allri starfsemi í Dayton og að jafnframt hefur tekist að tryggja starfsmönnum áframhaldandi störf hjá góðu fyrirtæki, segir Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hf. í tilkynningu frá félaginu.

?DRT Mfg.Co. Corp. á sér langa sögu í Dayton og víðar sem framleiðslufyrirtæki og hyggst nú hasla sér völl á sviði framleiðslu íhluta til ígræðslu", segir Gary van Gundy forstjóri fyrirtækisins. DRT tekur yfir tæki, leigusamninga og starfsmenn Mauch, Inc. í Dayton frá og með 1. janúar 2005 og mun fyrirtækið sjá um að framleiða íhluti fyrir Össur sem notaðir eru í gervihné fyrst um sinn.

Sala Mauch nam 1,7% af heildarsölu Össurar hf. á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2004. Bókfært verð eigna Mauch, Inc. er USD 1,6 milljón og nemur söluverðið ríflega bókfærða verðinu en sala á Mauch, Inc. hefur óveruleg áhrif á rekstur og framlegð félagsins.