Össur hf. hefur skrifað undir samning við kínversku góðgerðarsamtökin Stand Tall og mun sjá fórnarlömbum Sichuan-jarðskjálftans, sem skók Kína fyrir rúmu ári, fyrir stoðtækjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Össur en samningurinn var undirritaður að viðstöddum sendiherra Íslands í Kína.

Stand Tall samtökin voru stofnuð af læknum og heilbrigðisstarfsfólki eftir jarðskjálftann í Sichuan og eru fjármögnuð af stjórnvöldum í Hong Kong og frjálsum framlögum. Rúmlega sjötíu þúsund manns létust í skjálftanum, sem mældist 7,9 á Richter, og um 350 þúsund slösuðust. Þá misstu yfir fimm milljónir manna heimili sín.

Þá kemur fram í tilkynningunni að meirihluti þeirra sem Stand Tall vinna með eru börn og ungmenni á aldrinum 12-20 ára.

Auk þess að sjá fórnarlömbum skjálftans fyrir stoðtækjum mun Össur einnig aðstoða við þjálfun starfsfólks endurhæfingarstöðvar sem reist verður fyrir fórnarlömb skjálftans í höfuðborg Sichuan héraðs. Chendu.