Gengi allra bréfa í Kauphöll Íslands lækkaði í dag, að undanskildu Össurri. Viðskipti með bréf í Össurri námi þó einungis 8 milljónum króna.

Gengi bréfa í Icelandair lækkaði um 0,85% í 233 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa í Sjóvá lækkaði um 0,96% í 174 milljóna króna viðskipti og gegni bréfa í Marel lækkkaði um 0,87% í 174 milljóna króna viðskiptum.

Verð á bréfum í Sjóvá, sem skráð var á markað í lok síðustu viku, er nú komið í 13,44 á hlut. Það er lægra en verðið var í tilboðshluta B í útboði Sjóvár en þá var verð bréfa 13,51.