Fjarskiptafyrirtækin AT&T og T-Mobile USA, dótturfélag Deutsche Telekom og Verizon Wireless hafa öll kynnt til sögunnar ótakmörkuð símtöl í farsíma gegn föstu mánaðargjaldi.
Mánaðargjaldið er í kringum 6.700 krónur og er þá ekkert mínútugjald, startgjald eða nein önnur gjöld innheimt fyrir símtöl. T-Mobile býður að auki upp á innifalin ótakmörkuð SMS-skilaboð í gjaldinu.
Þessi nýja þróun á fjarkskiptamarkaðnum hefur vakið nokkrar áhyggjur fjárfesta sem telja hana geta leitt til verðstríðs og heft þar með vöxt fyrirtækjanna. Við fréttirnar lækkuðu hlutabréf í Verizon um 6,26%, AT&T um 5,6% og Sprint um 2,61%. Nú er bara að bíða og sjá hvort íslensku fyrirtækin fylgja eftir.