Frá og með byrjun þessa árs er óþarfi að framvísa farseðli þegar gjaldeyrir er keyptur. Frá þessu greinir Fjármála- og efnahagsráðuneytið á Facebooksíðu sinni. Breytingin á sér stað vegna breyttra laga um gjaldeyrismál.

Í frétt Seðlabanka Íslands um breytingu á lögunum er sagt að um þessi áramót hafi „veigamikið skref“ verið tekið til losunar fjármagnshafta á heimili og fyrirtæki í samræmi við þriðja áfanga áætlunar stjórnvalda frá árinu 2015. Innlendir og erlendir aðilar geta nú einnig tekið út erlendan gjaldeyri í reiðufé fyrir allt að 100 milljónir króna.