Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, leiðir lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá flokknum.

Annað sæti listans skipar Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi. Í þriðja sæti listans er Karólína Helga Símonardóttir, verkefnastjóri og formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Hafnafjarðar.

Hægt er að sjá fimm efstu sæti listans hér:

1.    Óttarr Proppé, alþingismaður
2.    Theodóra S. Þorsteinsdóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi
3.    Karólína Helga Símonardóttir, verkefnastjóri
4.    Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri
5.    Helga Björg Arnardóttir, tónlistarkennari og tónlistarkona