Ottó Biering Ottósson hefur verið ráðinn sjóðstjóri hjá Íslenskum verðbréfum, segir í fréttatilkynningu.

Ottó er fæddur árið 1974. Hann útskrifaðist sem vélfræðingur og stúdent árið 1997 og lauk sveinsprófi í vélsmíði árið 1999. Ottó útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2000 og sem hagfræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2004.

Frá 2003-2006 starfaði Ottó sem kennari við Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og sem verkefnisstjóri hjá Verðlagsstofu skiptaverðs frá 2004-2006. Eiginkona Ottós er Hugrún Ósk Hermannsdóttir leikskólastjóri og eiga þau tvo syni.