Ottó Freyr Jóhannsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Hýsingar- og rekstrarlausna hjá Origo. Helstu markmið Hýsingar- og rekstrarlausna Origo er að styðja við þarfir viðskiptavina um lausnaframboð og hagkvæmni. Má þar nefna þjónustu og ráðgjöf á fjölnota skýjalausnum, miðlægum lausnum, gagnagrunnum, afritun, netkerfum og sýndarlausnum.

Ottó hefur starfað hátt í 20 ár hjá Origo og forvera við ýmis störf, allt frá samsetningu á tölvum, notendaþjónustu, viðskiptastýringu og sem forstöðumaður viðskiptastýringar. Hann er með meistarapróf í rafeindavirkjun og rafiðnfræðingur frá HR.

Ottó er giftur þriggja barna faðir. Hans helsta áhugasvið er tónlist og sagnfræðin á bak við tónlist og tónlistarfólk.