Ottó Sigurðsson hefur verið ráðinn forstöðumaður innflutningsdeildar Samskipa og tekur til starfa á næstu vikum. Hann hefur starfað við sölu-, markaðs og viðskiptastjórnun hjá Vodafone frá árinu 2007, bæði sem viðskiptastjóri og sölustjóri og nú síðast sem forstöðumaður fyrirtækjasölu.

Ottó Sigurðsson.
Ottó Sigurðsson.

Hann lauk B.Sc. prófi í viðskipafræði frá Louisiana háskóla í Lafayette í Bandaríkjunum árið 2004 og var atvinnumaður í golfi á árunum 2006-2007, áður en hann réðst til starfa hjá Vodafone.

Ottó er í sambúð með Karen Lilju Sigurbergsdóttur og eiga þau tvö börn.