Jóhann R. Benediktsson lögreglustjóri lætur af embætti 1. október næstkomandi.

Í yfirlýsingu frá Haraldi Johannessen, ríkislögreglustjóra, sem birtist á lögregluvefnum í dag, segir að óvenjulegt sé að lögregluforingi kveðji samstarfsmenn sína til margra ára með stóryrðum og hrakspám eða líki lögreglustarfi við sandkassaleik.   Í yfirlýsingu ríkislögreglustjóra segir ennfremur að innan raða lögreglunnar hafi síðastliðin ár verið rætt um stefnur og strauma í löggæslumálum að hvatningu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra.

„Skipulagsbreytingar hafa reynt á hæfni og getu yfirmanna og hafa þeir sýnt festu og áræðni til að ná settum markmiðum. Um þetta hefur verið samstaða meðal allra lögreglustjóra. Einn úr hópnum kýs nú að fara aðra leið. Það er hans val.“   „Ég óska Jóhanni R. Benediktssyni velfarnaðar á nýjum vettvangi, þótt kveðja hans til okkar, sem viljum metnað lögreglu sem mestan, sé ekki lögreglustjóra samboðin,“ segir Haraldur í yfirlýsinguni.