Ástralski bankinn, Macquarie Bank, hefur gert óvinveitt yfirtökutilboð í Kauphöllina í London (The London Stock Exchange, LSE). Tilboðið hljóðar upp á 1,5 milljarða punda.

Yfirtökutilboðið kemur í kjölfar þess að tilboði ástralska bankans í liðinni viku var hafnað. Tilraun til óvinveittrar yfirtöku er gerð að sögn talsmanna bankans eftir viðræður við hluthafa kauphallarinnar og miðast við 580 pens á hlut.

Talsmenn kauphallarinnar hafa ekki tjáð sig um málið.