Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) lækkar í júlí, sjöunda mánuðinn í röð og gildi fyrir júní er endurskoðað niður á við. Þessi þróun ber vott um óvissu sem ríkir með efnahagshorfur á haustmánuðum.
Leiðandi hagvísir Analytica lækkar í júlí og tekur gildið 99,7. Sú tala á að gefa vísbendingu um framleiðslu sex mánuðum síðar þ.e. í janúar 2019. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni.
Fimm af sex undirliðum lækka frá í júní og eini undirliðurinn sem hækkar er vísitala aflamagns. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er þó enn sterk og áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum.
Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Hún er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.
Greiningu Analytica í heild sinni má lesa hér .