Svo virðist sem óvissa sé um það hvort aukaframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sé inn í fjárlögum næsta árs ef marka má frétt á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Vegna áforma fjármálaráðuneytisins um að fella niður aukaframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í fjárlögum næsta árs og lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á ríkiseignir hafa fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagt þunga áherslu á við ráðherra og þingmenn undanfarna daga og vikur að horfið verði frá þeirri fyrirætlan.

Í gærkveldi og aftur í morgun var það staðfest við Halldór Halldórsson, formann sambandsins, af hálfu forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar að fallist yrði að mestu á kröfur sveitarfélaganna í þessum efnum segir í fréttinni.

Þegar endurskoðað fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár var kynnt á fréttamannafundi í morgun var m.a. greint frá því að aukaframlagið myndi falla niður að óbreyttu á næsta ári en veitt yrði heimild til sveitarfélaga í lögum að hækka útsvar svo þau gætu bætt sér upp þann tekjumissi.

Aukaframlagið nam 1,4 milljarði króna á þessu ári. Ekki var getið um hve há útsvarshækkunin yrði í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Þessar upplýsingar eru ekki nákvæmar miðað við þróun málsins segir í frétt SAS. Formaður sambandsins hefur eftir forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar að aukaframlag að fjárhæð 1,0 milljarður króna verði í þeim fjárlögum sem endanlega verða samþykkt og að ekki verði gerðar breytingar á álagningarhlutfalli fasteignaskatts á ríkiseignir. Jafnframt standi til að heimila sveitarfélögum 0,25% stiga hækkun útsvars á næsta ári sem þýðir að hámarksútsvarsálagning getur numið  13,28% á næsta ári.

„Sveitarstjórnarmenn eiga að geta treyst þessum niðurstöðum. Þetta þýðir að vísu 400 milljóna króna lækkun aukaframlagins úr jöfnunarsjóði sem kallar á endurskoðun regla um úthlutun þess svo tryggja megi að það renni til þeirra sveitarfélaga sem hafa mesta þörf fyrir það", sagði Halldór.