Ólafi Þ. Stephensen, ritstjóra Fréttablaðsins, var boðið að vera ritstjóri blaðsins áfram, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Ekki liggur fyrir hver ákvörðun hans er en Ólafur var ekki á starfsmannafundi sem boðað var til hjá 365 í dag þar sem tilkynnt var að Mikael Torfason sé hættur sem aðalritstjóri fyrirtækisins.

Ekki hefur náðst í Ólaf vegna málsins.

Eins liggur ekki fyrir hvort fleirum hafi verið sagt upp hjá 365 miðlum í dag.

Á sama tíma hefur Sigurjón M. Egilsson verið ráðinn fréttaritstjóri og mun Kristín Þorsteinsdóttir, útgefandi 365 miðla, tekið við starfi Mikaels.