Veðmálafyrirtækið Paddy Power Betfair tapaði tæplega 5 milljónum punda - eða því sem jafngildir um 706 milljónum íslenskra króna, vegna sigurs Donald Trump Bandaríkjaforseta í forsetakosningunum vestanhafs. Kjör Trump kom mörgum í opna skjöldu, og þar á meðal veðmálasíðunni. BBC greinir frá.

Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu er þó einnig tekið fram að Paddy Power tapaði einnig á óvæntum úrslitum í knattspyrnu. Heildartap vegna óvæntra niðurstaðna voru um 40 milljónir punda síðastliðna þrjá mánuði.

Heildartekjur fyrirtækisins jukust um 10% á fjórða ársfjórðungi og voru 388 milljónir. Heildartekjur fyrirtækisins námu 1,55 milljarðar punda og jukust um 18% milli ára.