Léttleika Frans páfa í opinberri heimsókn til Bólivíu er ekki hægt að rekja til neyslu á kókalaufum , sem eru helsta innihaldsefni í kókaíni. Fjölmiðlar hafa undanfarna daga gert sér mat úr því að páfanum hafi verið boðin laufun til neyslu, en heimamenn í Bólivíu tyggja þau til að viðhalda þreki við mikla hæð yfir sjávarmáli.

Talsmaður páfans gerið að því skóna að hann myndi neyta laufanna til virðingar við siði í Bólivíu, en hann neitar því hins vegar að hann hafi gert það á blaðamannafundi í dag, að því er segir á fréttavef Ríkisútvarpsins.