Páll Borg, annar stofnenda flugrekstrarfélagsins JetX/Primera Air, hefur verið ráðinn af Wow air til þess að veita félaginu ráðgjöf. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi Wow air, staðfestir þetta í samtali við Viðskiptablaðið.

Páll hefur lengi starfað innan fluggeirans og stofnaði JetX/Primera Air árið 2003. Þá starfaði hann hjá Astraeus, fyrrum systurfélag Iceland Express, á síðasta ári.

Eins og greint var frá í gær þá hefur Matthías Imsland látið af störfum sem framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Wow air í kjölfar kaupa Wow á Iceland Express. Að sögn Svanhvítar liggur ekki fyrir hver mun taka við starfinu og verður staðan auglýst innan tíðar.