Páll Magnússon útvarpsstjóri hefur ákveðið að fresta því að ráða í stöðu dagskrárstjóra útvarps.Þetta kemur fram á vef Kjarnans, þar sem segir að Páll Magnússon hafi kynnt starfsmönnum þetta með bréfi á dögunum.

Eftir að starfið var auglýst laust til umsóknar sóttu fimmtán manns um. Nöfn þeirra hafa öll verið birt opinberlega. Nú hefur útvarpsstjóri aftur á móti ákveðið að Magnús R. Einarsson og Þóra Pétursdóttir munu gegna starfinu þar til ákvörðun um tilhögun þess til frambúðar liggur fyrir.

Þessir sóttu um stöðuna:

Áslaug Baldursdóttir
Davíð Þór Jónsson
Gunnar Gunnarsson
Guðni Tómasson
Helgi Pétursson
Hjálmar Hjálmarsson
Ingi Rafn Sigurðsson
Jóhann Hauksson
Kristján Hreinsson
Magnús R. Einarsson
Ólína Þorvarðardóttir
Sighvatur Jónsson
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Snorri Ásmundsson
Þorsteinn Hreggviðsson