Páll Harðarson hefur verið skipaður forstjóri NASDAQ OMX kauphallarinnar á Íslandi.

Páll er fæddur 1966. Áður en hann hóf störf hjá NASDAQ OMX Iceland, þá Kauphöll Íslands, 2002, var hann hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun í þrjú ár. Hann hefur Ph.D. gráðu í hagfræði frá Yale University.

„Páll hefur starfað sem rekstrarstjóri og staðgengill forstjóra NASDAQ OMX Iceland í níu ár, og vann náið með fyrrverandi forstjóra, Þórði Friðjónssyni, sem því miður er nú fallinn frá. Við erum afar þakklát fyrir framlag Þórðar og frábæra forystu í gegnum árin. Við þekkjum Pál vel. Hann hefur víðtæka þekkingu á starfsemi NASDAQ OMX á Íslandi og hefur sterkan bakgrunn í stjórnun og hagfræði. Við berum fullt traust til hans í þessu nýja og ögrandi verkefni”, segir Hans-Ole Jochumsen, forstjóri NASDAQ OMX Nordics, í tilkynningu um ráðninguna.