Páll Liljar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri yfir nýju Tæknisviði hjá Mílu.

Páll útskrifaðist sem verkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og hóf í kjölfarið störf hjá Símanum. Hann hefur gegnt stöðu forstöðumanns hjá Símanum síðan 2006, núna síðast sem forstöðumaður Gagnalausna og Tækniþjónustu.

Páll Liljar hefur þegar hafið störf hjá Mílu og mun hann ásamt öðrum vinna að nánari útfærslu á nýju sviði.