Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpstjóri Ríkisútvarpsins og fréttarstjóri Stöðvar 2, hefur tekið við sem umsjónarmaður Sprengisands á Bylgjunni.

Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar í beinni útsendingu alla sunnudaga milli klukkan 10 og 12 og verður fyrsti þátturinn í hans umsjá næstkomandi sunnudag.