Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans, hefur verið ráðinn forstjóri Landspítalans. Páll tekur tímabundið við af Birni Zoega. Björn sagði upp störfum á föstudaginn.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fundaði með framkvæmdastjórn Landspítalans laust eftir klukkan tíu í morgun þar sem hann tilkynnti ákvörðunina.
Uppfært kl. 11:07.
Á vefsíðu velferðarráðuneytisins hefur ráðningin núna verið staðfest. Hér má lesa tilkynninguna .