Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað Pál Matthíasson til að gegna embætti forstjóra Landspítala til næstu fimm ára. Skipunin tekur gildi 1. apríl nk., að því er segir í Morgunblaðinu.

Páll var settur forstjóri spítalans í október síðastliðnum þegar Björn Zoëga sagði stöðunni lausri.

Auk Páls sóttu um stöðuna þeir Heimir Guðmundsson, Lýður Árnason og Sveinn Ívar Sigríksson.