Páll Erland hefur verið ráðinn ráðinn framkvæmdastjóri Samorku. Páll hefur starfað í orku- og veitufyrirtækjum frá árinu 2001. Páll var meðal annars framkvæmdastjóri veitureksturs Orkuveitu Reykjavíkur í  sjö ár og framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar frá því orkufyrirtækið var stofnað árið 2014.  Þá hefur hann einnig setið í stjórn HS Veitna. Páll er með MBA frá Rockford University í Bandaríkjunum og BS í viðskiptafræði frá sama skóla.

„Páll hefur störf í ársbyrjun 2017. Hann tekur við starfinu af Gústaf Adolf Skúlasyni sem sagði starfi sínu lausu í október en gegnir því áfram þar til Páll tekur til starfa. Gústaf verður samtökunum jafnframt áfram innan handar fyrst um sinn.

Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Innan samtakanna starfa fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuframleiðendur, raforkusalar og flutnings- og dreifingarfyrirtæki raforku,“ segir í tilkynningu frá Samorku.