Páll Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur/MBA og fyrrverandi bæjarstjóri hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SSH, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Páll var bæjarstjóri í Fjarðarbyggð árin 2010-2018 og fjármálastjóri sama sveitarfélags í fjögur ár. Hann hefur starfað sem útibússtjóri hjá Íslandsbanka, forstöðumaður hjá Landsbankanum og hefur fjölbreytta reynslu af verkefnum og stjórnarsetu á vettvangi sveitarfélaga. Páll tekur við framkvæmdastjórn SSH af Páli Guðjónssyni sem gegnt hefur starfinu síðastliðin tíu ár. Umsækjendur um starfið voru 33 talsins.